Með vísan til 95. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, tilkynnir ráðuneytið að það hefur hinn 13. maí 2009 staðfest sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar í umdæmi sýslumannsins á Akureyri, í eitt sveitarfélag. Jafnframt hefur verið ákveðið: Sameining framangreindra sveitarfélaga skal taka gildi 1. júní 2009. Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land sem nú tilheyrir áðurgreindum sveitarfélögum. Íbúar beggja sveitarfélaganna skulu vera þegnar hins sameinaða sveitarfélags. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til hins sameinaða sveitarfélags. Skjöl og bókhaldsgögn beggja sveitarfélaganna skulu afhent hinu sameinaða sveitarfélagi til varðveislu. Sérstök athygli skal vakin á eftirfarandi: Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar fer með stjórn hins sameinaða sveitarfélags fram að almennum sveitarstjórnarkosningum vorið 2010. Samráðsnefnd (hreppsnefnd Grímseyjarhrepps) skal hafa það hlutverk að vera tengiliður fagnefnda og íbúa Grímseyjar fram að sveitarstjórnarkosningum 2010 og hafa rétt til að skipa einn fulltrúa úr nefndinni til setu á fundum fagnefnda Akureyrarkaupstaðar með málfrelsi og tillögurétt þegar málefni Grímseyjar eru til umfjöllunar. Kjósa skal 11 fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags, sbr. 1. mgr. 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Hið sameinaða sveitarfélag skal heita Akureyrarkaupstaður. Samgönguráðuneytinu, 13. maí 2009. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |