1. gr. Með auglýsingu þessari er felld úr gildi auglýsing nr. 583, 9. júní 2011, um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 361, 4. apríl 2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011, til þess að öðlast gildi 28. júní 2011 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. júní 2011. F. h. r. Jóhann Guðmundsson. Indriði B. Ármannsson. |