1. gr. Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/2012 frá 28. september 2012 um að bæta við IX. viðauka EES-samningsins (fjármálaþjónusta) reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 583/2010 frá 1. júlí 2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta og skilyrði sem skulu uppfyllt þegar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta eða lýsingin er lögð fram á varanlegum miðli öðrum en pappír eða vefsetri. 2. gr. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 583/2010 frá 1. júlí 2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta og skilyrði sem skulu uppfyllt þegar lykilupplýsingar fyrir fjárfesta eða lýsingin er lögð fram á varanlegum miðli öðrum en pappír eða vefsetri. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 10. 3. gr. Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 583/2010 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 8. mgr. 52. gr. laga um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast gildi þann 1. febrúar 2014. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. október 2013. F. h. r. Tómas Brynjólfsson. Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir. |