1. gr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Leitar- og björgunarsvæðið afmarkast af eftirfarandi hnitum: 73°00,0´N 020°00,0´V, 73°00,0´N 000°00,0´A/V, 61°00,0´N 000°00,0´A/V, 61°00,0´N 030°00,0´V, 58°30,0´N 030°00,0´V, 58°30,0´N 043°00,0´V, 63°30,0´N 039°00,0´V, 70°00,0´N 020°00,0´V, 73°00,0´N 020°00,0´V. 2. gr. Á eftir 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein sem verður 5. mgr. sem orðast svo: Landhelgisgæslan ber ábyrgð á stjórnun leitar og björgunar á norðurslóðum í samræmi við ákvæði alþjóðasamnings aðildarríkja Norðurskautsráðsins um samstarf við leit og björgun á hafi og í lofti á norðurslóðum (Agreement on Cooperation on Aeronautical and Maritime Search and Rescue in the Arctic). Landhelgisgæslan skal veita öðrum aðildarríkjum samningsins þá aðstoð og þær upplýsingar sem þau óska í tengslum við leit og björgun á svæðinu í samræmi við ákvæði samningsins, lög um Landhelgisgæslu Íslands, lög um loftferðir, siglingalög sem og reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Höfð skal samvinna við aðildarríki samningsins svo sem um þjálfun og æfingar við leit og björgun í samræmi við ákvæði samningsins. Björgunarmiðstöð sjófarenda og loftfara (JRCC-Ísland) telst vera samhæfingarmiðstöð björgunar (Rescue Coordination Center) á grundvelli samningsins og ber ábyrgð á verkefnum í tengslum við leit og björgun á svæðinu, í umboði Landhelgisgæslunnar og í samræmi við ákvæði samningsins. Landhelgisgæslan ber ábyrgð á því að upplýsa og virkja þá aðila aðra sem koma þurfa að leit og björgun á svæðinu svo sem viðeigandi lögregluyfirvöld, björgunarsveitir, rekstraraðila flugvallar, Flugmálastjórn Íslands og Siglingastofnun Íslands eftir atvikum. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006 og 132. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Innanríkisráðuneytinu, 10. nóvember 2011. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |