Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 82/2010

Nr. 82/2010 24. júní 2010

LÖG
um breytingu á lögum nr. 44/2002, um geislavarnir, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
    a.    Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo: 
               Einstaklingum yngri en 18 ára eru óheimil afnot af sólarlömpum, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum, á stöðum sem starfsleyfi hafa samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð. Um eftirlit, þvingunarúrræði og viðurlög fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
    b.    Við 2. mgr. bætist: og öðrum takmörkunum.

2. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2011.

Gjört á Bessastöðum, 24. júní 2010.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Álfheiður Ingadóttir.


A-deild - Útgáfud.: 30. júní 2010

  Til baka