HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru: 1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. a laganna: a. Í stað „7 kr./kg“ kemur: 12 kr./kg. b. Í stað „3 kr./kg“ kemur: 5 kr./kg.
2. gr.
Í stað „3,00 kr./kg“ í viðauka I við lögin kemur: 5,00 kr./kg.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka V við lögin: a. Í stað „3,00 kr./kg“ kemur hvarvetna: 7,00 kr./kg. b. Eftirfarandi tollnúmer bætast við viðaukann: 2926.9000 Acetonitrile 120,00 kr./kg 2930.9000 DMSO 120,00 kr./kg 2933.3100 Oxidizer 120,00 kr./kg 3815.9000 Activator 120,00 kr./kg
4. gr.
Í stað „130,00 kr./kg“ í viðauka VI við lögin kemur hvarvetna: 160,00 kr./kg.
5. gr.
Í stað „1,50 kr./kg“ í viðauka VII við lögin kemur hvarvetna: 2,50 kr./kg.
6. gr.
Í stað „25,00 kr./kg“ í viðauka VIII við lögin kemur hvarvetna: 30,00 kr./kg.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XI við lögin: a. Í stað „19,00 kr./kg“ kemur: 25,00 kr./kg. b. Í stað „26,60 kr./kg“ kemur: 35,00 kr./kg. c. Í stað „104,50 kr./stk. kemur: 138,00 kr./stk. d. Í stað „313,50 kr./stk.“ kemur: 414,00 kr./stk. e. Í stað „418,00 kr./stk.“ kemur: 552,00 kr./stk. f. Í stað „627,00 kr./stk.“ kemur: 828,00 kr./stk. g. Í stað „836,00 kr./stk.“ kemur: 1.104,00 kr./stk. h. Í stað „1.672,00 kr./stk.“ kemur: 2.207,00 kr./stk.
8. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2010.
Gjört í Reykjavík, 22. júní 2010. Jóhanna Sigurðardóttir. | Ásta R. Jóhannesdóttir. (L. S.) | Ingibjörg Benediktsdóttir. |
Svandís Svavarsdóttir. |