Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 726/2012

Nr. 726/2012 28. ágúst 2012
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 329/2012, um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2012.

1. gr.

Við reglugerðina kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Hverju skipi sem hafði leyfi Fiskistofu til makrílveiða með línu eða handfærum þann 28. ágúst 2012, er heimilt að veiða í 10 daga til viðbótar á árinu 2012 eftir að hámarksafla skv. 1. tl. 2. gr. er náð. Fiskistofa sér um framkvæmd þessa ákvæðis.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. ágúst 2012.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 29. ágúst 2012