Miðsvæði hafnar – Reitur 3. Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti þann 29. apríl 2008 deiliskipulagið „Miðsvæði hafnar – Reitur 3“. Skipulagssvæðið liggur frá Norðurgarði, austan við Hrannarstíg og suður út frá enda Nesvegar í átt að Grundargötu neðan fiskvinnslu Soffaníasar Cecilssonar og endar við Gilsárós. Á svæðinu eru ný löndunarbryggja, flotbryggja, vigt og vigtarhús auk blandaðra akstursleiða um hafnarsvæðið ásamt bílastæðum. Lóðamörk hafa verið endurskilgreind og byggingareitir núverandi húsa verið ákvarðaðir. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Grundarfirði, 16. febrúar 2009. | Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, | Hjörtur Hans Kolsöe. |
|