FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands: 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar: Á eftir 4. tölul. kemur nýr töluliður sem orðast svo: Forustu og verkstjórn innan Stjórnarráðs Íslands. Á eftir orðunum „Skiptingu starfa“ í 6. tölul. kemur: og samhæfingu þeirra. Á eftir 7. tölul. kemur nýr töluliður sem orðast svo: Umbætur í löggjöf og stjórnsýslu. 12., 14., 17. og 18. tölul. falla brott.
2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðanna „Dóms- og kirkjumálaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti. 14. tölul. fellur brott. Á eftir orðunum „til Alþingis“ í 16. tölul. kemur: kosningar til sveitarstjórna. Við bætast þrír nýir töluliðir sem verða 25.-27. tölul. og orðast svo: Fasteignaskráningu og fasteignamat. Neytendavernd, þar á meðal alferðir. Vog, mál og faggildingu. Vöruöryggi.
3. gr. 9., 12. og 13. tölul. 5. gr. reglugerðarinnar falla brott. 4. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „Menntamálaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Mennta- og menningarmálaráðuneyti. Á eftir orðinu „fjölmiðla“ í 10. tölul. kemur: þ.m.t. prentmiðla.
5. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „Samgönguráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Orðið „sveitarstjórnarkosningar“ í 10. tölul. fellur brott.
6. gr. Á eftir orðunum „erlend ríki“ í 4. tölul. 12. gr. reglugerðarinnar kemur: þ.m.t. norræna samvinnu. 7. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „Viðskiptaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Efnahags- og viðskiptaráðuneyti. 6. og 7. tölul. falla brott. Við bætast fimm nýir töluliðir sem verða 10.-14. tölul. og orðast svo: Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF). Hagstjórn almennt. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum. Hagstofu Íslands. Endurskoðendur og framkvæmd bókhalds- og ársreikningalaga.
8. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 73/1969, öðlast gildi 1. október 2009. Gjört á Bessastöðum, 18. september 2009. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir. |