1. gr. Í stað orðanna „tiltekið mál“ í 2. mgr. 33. gr. samþykktarinnar kemur: ákvörðun bæjarstjórnar. 2. gr. 2. tölul. 1. mgr. 58. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Bæjarlögmanni í umboði bæjarráðs samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007 og gildandi lögreglusamþykkt: a) Að veita umsögn vegna umsagnar um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingar og sölu veitinga, hvort sem er í mat eða drykk, bæði áfengra og óáfengra og/eða útleigu samkomusala í atvinnuskyni, sbr. 4. mgr. 17. gr. laga nr. 85/2007. b) Að veita umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir einstaka skemmtanir og atburði sem fram fara utan veitinga- og gististaða í atvinnuskyni, sbr. 4. mgr. 17. gr. laga nr. 85/2007. 3. gr. Síðasti málsl. 1. mgr. 65. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Bæjarráð fer með upplýsinga- og markaðsmál og málefni miðbæjarins. 4. gr. Í 66. gr. samþykktarinnar falla brott orðin: Menningar- og ferðamálanefnd og stjórn Hafnarborgar. 5. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 71. gr. samþykktarinnar: a) Í stað „barnalaga nr. 20/1992“ í 1. mgr. 71. gr. samþykktarinnar komi: barnalaga nr. 76/2003. b) Aftan við 1. mgr. 71. gr. samþykktarinnar bætist: og menningar- og ferðamál. 6. gr. Aftan við 72. gr. samþykktarinnar bætist: Menningar- og ferðamálanefnd, stjórn Hafnarborgar. 7. gr. Í stað orðanna „lög nr. 66/1995 um grunnskóla og lög nr. 78/1994 um leikskóla" í 1. mgr. 77 gr. samþykktarinnar komi: lög nr. 91/2008 um grunnskóla og lög nr. 90/2008 um leikskóla. 8. gr. 91. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Bæjarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu svo sem bæjarlögmann, sviðsstjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag sem er í eigu bæjarsjóðs og veitir þeim lausn frá störfum. 9. gr. 92. gr. samþykktarinnar verður svohjóðandi: Sviðsstjóri ræður starfsmenn sem heyra beint undir hana í skipuriti að fenginni umsögn viðkomandi ráða. Forstöðumenn og aðrir stjórnendur ráða starfsmenn sem heyra beint undir þá í skipuriti. Samþykkt þessi sem bæjarstjón Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur sett skv. ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 24. júní 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |