1. gr. Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr.: a) | Gjaldnúmer 931 og 932, í kafla um bitlækningar og bittæki, sameinast í eitt númer, 932 og verður heiti verks Þvingunarbits- eða krossbitsplata. Verð verður 28.080 kr. | b) | Kafli með fyrirsögninni „Tannréttingar“ breytist þannig: | | Gjaldnúmer 001 t.o.m. 250, 813 og 814 falla brott. Í þeirra stað koma ný númer á viðeigandi stöðum í kaflanum: | | | | kr. | | 801 | Viðtal | 1.780 | | 802 | Fræðsla | 1.780 | | 803 | Fyrsta skoðun | 2.660 | | 804 | Áfangaeftirlit | 1.780 | | 806 | Umsókn | 1.430 | | 807 | Greinargerð að ósk SÍ | 2.850 | | 813 | Röntgen- eða vaxtargreining | 6.300 | | 814 | Aðrar röntgenmyndir (TMJ, occlusal, handarröntgen) | 2.030 | | 816 | Röntgensmámynd | 1.020 | | 817 | Prófílröntgen/PA | 2.030 | | 818 | Röntgenstórmynd (OPG o.þ.h.) | 2.040 | | 819 | Heildarröntgenmyndataka, a.m.k. 10 smámyndir | 7.590 | | 824 | Ljósmynd | 290 | | 860 | Vinnumódel | 1.780 | | 888 | Rýmishaldari | 3.560 |
2. gr. Eftirfarandi breyting verður á 5. gr. þar sem fjallað er um tannréttingar og orðast málsgreinin svo: Tannréttingar: #801-888. 3. gr. Eftirtalin breyting verður á 6. gr: a) Kafli um tannréttingar orðist svo: Tannréttingar: Almennt: Verkstæðiskostnaður er innifalinn í verði gjaldnúmera 801-888. b) Kafli um bitlækningar og bittæki breytist þannig: Í stað gjaldskrárskýringa á liðum 931 Þvingunarbitsplata og 932 Krossbitsplata kemur ný málsgrein sem orðist svo: 932 Þvingunarbits- eða krossbitsplata. Meðferðinni er ætlað að leiðrétta einfalda bitskekkju og koma í veg fyrir þörf fyrir tannréttingar síðar. Meðferðin er því ekki upphaf tannréttinga. Endurgreiðist aðeins á tannskiptaaldri og mest einu sinni fyrir hvern einstakling. Innifalin er aðlögun meðan á meðferð stendur. 4. gr. Breyting þessi á gjaldskrá, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 698/2010 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, sbr. síðari breytingar, öðlast gildi 1. janúar 2012 og gildir til og með 31. desember 2012. Sjúkratryggingum Íslands, 20. desember 2011. Steingrímur Ari Arason. Kristján Guðjónsson. |