Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 63/2010

Nr. 63/2010 22. júní 2010

LÖG
um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, með síðari breytingum.

HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS
   samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

1. gr.
    Við 2. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Gjaldskyldum aðilum skv. 1. mgr. 3. gr. er óheimilt að selja litaða olíu í sjálfsafgreiðsludælum nema slík viðskipti eigi sér stað með sérstöku viðskiptakorti gjaldskylds aðila.

2. gr.
    Í stað orðsins ,,bifreiðum“ í 6. mgr. 13. gr. laganna kemur: ökutækjum.

3. gr.
    Í stað fjárhæðanna „200.000 kr.“, „500.000 kr.“, „750.000 kr.“, „1.000.000 kr.“ og „1.250.000 kr.“ í 5. mgr. 19. gr. laganna kemur: 300.000 kr., 750.000 kr., 1.125.000 kr., 1.500.000 kr., og: 1.875.000 kr.

4. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. október 2010, nema ákvæði 2. gr. sem öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 22. júní 2010.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ásta R. Jóhannesdóttir.
(L. S.)

Ingibjörg Benediktsdóttir.

Steingrímur J. Sigfússon.


A-deild - Útgáfud.: 23. júní 2010

  Til baka