Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1000/2008

Nr. 1000/2008 17. október 2008
REGLUGERÐ
um vistunarmat vegna hjúkrunarrýma.

I. KAFLI

Vistunarmatsnefndir.

1. gr.

Starfssvæði vistunarmatsnefnda.

Í hverju heilbrigðisumdæmi, sbr. reglugerð nr. 785/2007, um heilbrigðisumdæmi, skal starfa vistunarmatsnefnd. Kostnaður af starfi nefndanna greiðist úr ríkissjóði.

2. gr.

Skipan vistunarmatsnefnda.

Heilbrigðisráðherra skipar þriggja manna vistunarmatsnefnd í hverju heilbrigðisumdæmi til fimm ára í senn til að meta þörf einstaklinga fyrir langvarandi vistun í hjúkrunarrými. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna og setur honum erindisbréf. Nefndirnar skulu skipaðar lækni með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunar­fræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu og félagsráðgjafa með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða. Ráðherra skipar einnig þrjá varamenn sem uppfylla sömu menntunarskilyrði og aðalmenn og er heimilt að kalla þá tímabundið til starfa eftir því sem þörf krefur. Félagsráðgjafar vistunarmatsnefnda skulu skipaðir samkvæmt til­nefningu félags- og tryggingamálaráðherra.

3. gr.

Verkefni vistunarmatsnefnda.

Verkefni vistunarmatsnefnda í hverju heilbrigðisumdæmi felast í því að leggja faglegt mat á þörf fólks, óháð aldri, fyrir langvarandi vistun í hjúkrunarrými eins og þau eru skil­greind í lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra.

Vistunarmatsnefndir skulu í störfum sínum hafa að leiðarljósi það markmið að fólki skuli gert kleift að búa á eigin heimili utan stofnana eins lengi og unnt er með viðeigandi heilbrigðis- og félagsþjónustu.

4. gr.

Umsjón landlæknis.

Landlæknir hefur yfirumsjón með framkvæmd vistunarmats á landsvísu. Umsjónin felur í sér leiðbeiningar til vistunarmatsnefnda um upplýsingaöflun og gerð vistunarmats sam­kvæmt skilgreiningum þess. Landlæknir fer einnig með faglegt eftirlit með störfum vistunarmatsnefnda og hefur umsjón með rekstri, viðhaldi og þróun rafrænnar vistunar­skrár.

Landlæknir skal halda reglulega samráðs- og fræðslufundi með vistunarmatsnefndum um framkvæmd vistunarmats.

II. KAFLI

Forsendur og framkvæmd vistunarmats.

5. gr.

Mat á vistunarþörf.

Áður en einstaklingur er vistaður í hjúkrunarrými, sbr. 16. gr. laga um heilbrigðis­þjónustu, skal fara fram mat á vistunarþörf, þ.e. vistunarmat, samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.

6. gr.

Forsendur fyrir gerð vistunarmats.

Forsendur fyrir gerð vistunarmats eru að fyrir liggi skrifleg beiðni, sbr. 7. gr. Einnig skal einstaklingur vera sjúkratryggður, sbr. 24. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.

7. gr.

Beiðni um vistunarmat.

Telji einstaklingur að hann þurfi að vistast til langdvalar í hjúkrunarrými skal hann senda skriflega beiðni um vistunarmat til vistunarmatsnefndar í því heilbrigðisumdæmi þar sem hann á lögheimili. Eyðublöð fyrir beiðni um vistunarmat skulu gefin út af landlæknis­embættinu.

Beiðni um vistunarmat skal því aðeins lögð fram að félagsleg heimaþjónusta, heima­hjúkrun og önnur úrræði sem eiga að styðja fólk til dvalar í heimahúsi séu fullreynd.

Undirrituð beiðni um vistunarmat felur í sér heimild til vistunarmatsnefndar um að afla upplýsinga um viðkomandi einstakling frá veitendum heilbrigðis- og félagsþjónustu og frá svæðisskrifstofu málefna fatlaðra eftir atvikum. Einnig er með því fallist á að niðurstöður vistunarmatsnefndar verði sendar þessum sömu aðilum.

Beiðni um vistunarmat skal send vistunarmatsnefnd í því heilbrigðisumdæmi þar sem viðkomandi á lögheimili. Ef meta skal þörf einstaklings sem er í dvalarrými fyrir flutning í hjúkrunarrými skal beiðni um vistunarmat send vistunarmatsnefnd í heilbrigðisumdæmi stofnunarinnar þar sem viðkomandi býr.

Miða skal við að alla jafna líði ekki meira en sex vikur frá því að vistunarmatsnefnd berst beiðni um vistunarmat þar til að niðurstaða liggur fyrir.

8. gr.

Flutningur af sjúkrahúsi í varanlega vistun.

Hafi sjúklingur verið lengur en sex vikur á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar og fyrirsjáanlegt er að hann þurfi á langvarandi vist í hjúkrunarrými að halda skal fara fram mat á vistunarþörf hans. Um framkvæmd matsins fer samkvæmt 7. gr. og skal undirrituð beiðni um vistunarmat send vistunarmatsnefnd í því heilbrigðisumdæmi þar sem við­komandi á lögheimili.

9. gr.

Ábyrgð vistunarmatsnefnda.

Vistunarmatsnefndir eru ábyrgar fyrir mati á vistunarþörf íbúa í því heilbrigðisumdæmi sem þeir starfa. Ábyrgðin felur m.a. í sér að afla allra áskilinna gagna og upplýsinga, sbr. 10. gr., og tryggja að fagleg sjónarmið ráði ferðinni við matsgerðina. Vistunar­mats­nefndir bera ábyrgð á rafrænni skráningu vistunarmatsins og að meðferð og varðveisla gagna sem vistunarmatið byggist á samræmist lögum nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Vistunarmatsnefndir bera einnig ábyrgð á að kynna niðurstöður vistunarmats þeim sem málið varðar, sbr. 11. gr. Þeir sem sinna vistunar­mati eru bundnir trúnaðar- og þagnarskyldu í samræmi við 12. og 13. gr. laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga.

10. gr.

Framkvæmd vistunarmats.

Þegar vistunarmatsnefnd hefur borist beiðni um vistunarmat, sbr. 7. gr., skal nefndin afla skriflegra upplýsinga frá heimahjúkrun, félagsþjónustu og eftir atvikum svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, um aðstæður viðkomandi einstaklings og kanna gaumgæfilega hvort öll félagsleg og heilsufarsleg úrræði til dvalar í heimahúsi hafi verið fullreynd. Nýta skal upplýsingar úr matskerfinu RAI-Home Care þar sem það er í notkun. Auk þessa skal vistunarmatsnefndin afla læknabréfa um viðkomandi einstakling frá hlutaðeigandi læknum og sjúkrastofnunum. Ef um heilabilaðan einstakling er að ræða skal nefndin afla staðfestrar greiningar á því.

Komist vistunarmatsnefndin að þeirri niðurstöðu að fyrrnefnd úrræði hafi ekki verið full­reynd og að vistun í hjúkrunarrými sé ekki tímabær skal sú niðurstaða skráð í rafræna vistunarskrá og hún kynnt, sbr. 11. gr.

Skráning upplýsinga í rafræna vistunarmatsskrá skal gerð í samræmi við notenda­handbók sem fylgir matskerfinu. Vistunarmatsnefndin aflar upplýsinganna með samvinnu við starfsfólk félagsþjónustu og þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem þekkja til viðkomandi einstaklings. Nefndin er ábyrg fyrir skráningu upplýsinganna og ber að staðfesta réttmæti þeirra.

11. gr.

Kynning á niðurstöðum vistunarmats.

Telji vistunarmatsnefnd að vistun í hjúkrunarrými sé ekki tímabær og að önnur úrræði hafi ekki verið fullreynd skal sú niðurstaða kynnt skriflega fyrir viðkomandi einstaklingi með rökstuðningi nefndarinnar. Jafnframt skal senda afrit til heimilislæknis, heima­hjúkrunar, félagsþjónustu og eftir atvikum til svæðisskrifstofu málefna fatlaðra.

Ef einstaklingur er metinn í þörf fyrir vistun í hjúkrunarrými skal niðurstaðan kynnt honum skriflega og afrit sent heimilislækni, heimahjúkrun, félagsþjónustu og eftir atvik­um svæðisskrifstofu málefna fatlaðra.

Ef hlutaðeigandi einstaklingur sættir sig ekki við framgang vistunarmatsins eða niður­stöðu þess getur hann vísað málinu til umsagnar landlæknis.

12. gr.

Gildistími vistunarmats og endurmat á vistunarþörf.

Gildistími vistunarmats samkvæmt reglugerð þessari eru tólf mánuðir frá staðfestingu þess. Fari ekki fram endurmat innan tólf mánaða fellur vistunarmat viðkomandi einstaklings úr gildi. Þegar vistunarmat fellur úr gildi skal vistunarmatsnefnd kynna það fyrir þeim sem hlut eiga að máli með óyggjandi hætti og kanna hvort þörf sé fyrir endurmat.

Gildistími vistunarmats sem gert hefur verið fyrir 1. janúar 2008 er átján mánuðir frá staðfestingu þess. Gildistími vistunarmats sem gert hefur verið eftir þann tíma er tólf mánuðir frá staðfestingu þess.

13. gr.

Ákvörðun um vistun.

Stjórn stofnunar tekur ákvörðun um vistun einstaklings í hjúkrunarrými í samræmi við niðurstöður vistunarmatsnefndar í sínu heilbrigðisumdæmi nema sérstakir þjónustu­samningar kveði á um annað. Þegar hjúkrunarrými losnar á stofnun skal vistunar­mats­nefnd veita stofnuninni aðgang að upplýsingum um þrjá einstaklinga sem óskað hafa eftir að vistast þar og eru metnir í mestri þörf umsækjenda fyrir hjúkrunar­rými samkvæmt niðurstöðum vistunarmatsnefndar. Ákvörðun um þessa þrjá einstaklinga skal byggð á stigafjölda samkvæmt vistunarmati. Einnig skal höfð hliðsjón af því hvort viðkomandi hafi legið lengur en sex vikur á sjúkrahúsi án möguleika á útskrift nema í hjúkrunarrými eða hvort viðkomandi hafi beðið lengi í mikilli þörf fyrir vistun.

14. gr.

Tilkynning um vistun.

Þegar stjórn stofnunar hefur tekið ákvörðun um vistun einstaklings í hjúkrunarrými, sbr. 13. gr., skal hún tilkynna það hlutaðeigandi einstaklingi og jafnframt tilkynna um vistunina til vistunarmatsnefndar í viðkomandi heilbrigðisumdæmi. Vistunarmatsnefnd skal senda öll gögn sem varða viðkomandi einstakling til stofnunarinnar þar sem hann vistast og skulu þau geymd í sjúkraskrá hans.

15. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast gildi nú þegar. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1262/2007, um vistunarmat.

Heilbrigðisráðuneytinu, 17. október 2008.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Vilborg Þ. Hauksdóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. október 2008