Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 607/2012

Nr. 607/2012 27. júní 2012

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017, stækkun hafnarsvæðis H3, Grenjar.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 27. júní 2012 breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 8. maí 2012. Niðurstaða bæjarstjórnar var birt 14. júní 2012.

Breytingin felst í að hafnarsvæði H3 er stækkað um 0,6 ha með tilfærslu sjóvarnargarðs til norðausturs, stækkun hafnarbakka til suðvesturs og landfyllingum. Afmörkun Krókalóns sem er hverfisverndarsvæði er breytt og svæðið minnkað um 0,2 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 27. júní 2012.

Stefán Thors.

Erna Hrönn Geirsdóttir.


B-deild - Útgáfud.: 11. júlí 2012

  Til baka