Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
49/2012
|
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis: „FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, frá 19. júní 2012 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 11. september 2012. Gjört á Bessastöðum, 18. júní 2012. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir.“ Alþingi samþykkti hinn 19. júní 2012 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skírskotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, frestað hinn 19. júní 2012. Forsætisráðuneytinu, 20. júní 2012. Jóhanna Sigurðardóttir. Ragnhildur Arnljótsdóttir.
|
A-deild - Útgáfud.:
21. júní 2012
|