1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2010 frá 11. nóvember 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 584/2008, um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2160/2003 að því er varðar markmið Bandalagsins sem sett eru til að draga úr algengi Salmonella entertidis og Salmonella typhimurium í kalkúnum. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 584/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 7. janúar 2011, bls. 237. 3. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli. 4. gr. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 5. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. 6. gr. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. febrúar 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Indriði B. Ármannsson. |