Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 39/2015

Nr. 39/2015 8. janúar 2015

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Blönduósbæ.

1. gr.

Af köttum í Blönduósbæ skal bæjarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari sem eru ætluð til að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald í Blönduós­bæ, nr. 1121/2005.

2. gr.

Við umsókn um skráningu kattar í fyrsta sinn skal innheimta gjald að upphæð kr. 2.850 ásamt árlegu leyfisgjaldi katta að upphæð kr. 3.250. Leyfisgjaldið er ekki endurgreitt þrátt fyrir breytingar á kattahaldi innan ársins.

3. gr.

Við afhendingu handsamaðs kattar skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:

 

Fyrsta afhending kattar

kr.

9.540

 

Önnur afhending kattar

kr.

17.175

 

Þriðja afhending kattar

kr.

26.240

 

Við afhendingu kattar sem ekki er gilt leyfi fyrir

kr.

20.625

Að auki skal umráðamaður kattar greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

4. gr.

Gjalddagi leyfisgjalda er 1. mars og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld sam­kvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

5. gr.

Ofangreind gjaldskrá sveitarstjórnar Blönduósbæjar staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, með síðari breytingum, um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um kattahald í Blönduósbæ nr. 1121/2005, til að öðlast gildi þegar við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 31/2014. Gjaldskráin var samþykkt í sveitarstjórn Blönduósbæjar og í heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra.

Blönduósi, 8. janúar 2015.

Arnar Þór Sævarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2015