1. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytisins“ í 5. mgr. 15. gr. samþykktarinnar kemur: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 51. gr. samþykktarinnar: | a) | 9. tölul. verður svohljóðandi: Hafnarstjórn. Þrír aðalmenn og þrír til vara, sem fara með málefni hafnarstjórnar skv. 10. gr. hafnalaga nr. 61/2003. | | b) | 15. tölul. verður svohljóðandi: Skólanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. | | c) | 16. tölul. fellur niður. | | d) | 17. tölul. verður 16. tölul. og verður svohljóðandi: Bygginga-, skipulags- og umhverfisnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Jafnframt fer nefndin með umferðarmál, sbr. heimild í 2. mgr. 116. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og málefni gróðurverndar skv. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965. | | e) | 17. tölul. verður svohljóðandi: Þjónustuhópur aldraðra. Nefndin er sameiginleg með Vesturbyggð. Tálknafjarðarhreppur kýs einn fulltrúa og einn til vara. |
3. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytisins“ í 1. mgr. 58. gr. samþykktarinnar kemur: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. 4. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytinu“ í 62. gr. samþykktarinnar kemur: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. 5. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytinu“ í 4. mgr. 63. gr. samþykktarinnar kemur: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Samþykkt þessi, sem hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps hefur sett skv. 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. ágúst 2010. F. h. r. Stefanía Traustadóttir. Hjördís Stefánsdóttir. |