Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1305/2011

Nr. 1305/2011 21. desember 2011
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Við b-lið 1. mgr. 109. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Auk þess til MA-prófs: Evrópsk tungumál, saga og menning, í samvinnu við sagnfræði- og heimspekideild, sbr. 1. mgr. 115. gr.

2. gr.

d-liður 1. mgr. 111. gr. breytist og orðast svo:

Til meistaraprófs: Embættispróf í guðfræði (mag. theol.), meistaranám í guðfræði (MA – einungis fyrir þá sem hafa lokið cand. theol.-gráðu), meistaranám í trúarbragðafræði (MA) og meistaranám til kennslu í kristinfræði og trúarbragðafræði (MA).

3. gr.

Við upptalningu í 1. málslið b. liðar 1. mgr. 113. gr., á eftir orðinu íslenskukennsla, bætist: listfræði.

4. gr.

Við b-lið 1. mgr. 115. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Auk þess til MA-prófs: Evrópsk tungumál, saga og menning, í samvinnu við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, sbr. 1. mgr. 109. gr.

5. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 21. desember 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 4. janúar 2012