1. gr. Eftirfarandi orðskýring skal koma í 2. gr.: Hagsmunaðaðilar (interested party). Aðilar, hvort sem er einstaklingar eða lögaðilar, sem eru í aðstöðu til að taka þátt í að auka öryggi í almenningsflugi hafi þeir aðgang að upplýsingum um atvik sem falla undir reglugerð þessa. Sjá skrá yfir hagsmunaaðila í viðauka I við reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1330/2008. 2. gr. 1. mgr. 13. gr. skal orðast svo: Heimilt er að miðla upplýsingum, sem safnað er saman og skráðar eru í gagnagrunninum, til lögbærra yfirvalda erlendra ríkja, alþjóðastofnana, Eftirlitsstofnunar EFTA og hagsmunaðila. 3. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans: - Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1321/2007 frá 12. nóvember 2007 um reglur um framkvæmd skráningar upplýsinga um atvik í almenningsflugi, sem skipst er á í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2003/42/EB, í miðlægt gagnasafn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 49/2009 frá 24. apríl 2009. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6, 5. febrúar 2010, bls. 313.
- Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1330/2007 frá 24. september 2007 um reglur um framkvæmd miðlunar upplýsinga til hagsmunaaðila um atvik í almenningsflugi sem um getur í 2. mgr. 7. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/42/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins nr. 50/2009 frá 24. apríl 2009. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6, 5. febrúar 2010, bls. 315.
4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 35/2004 um rannsókn flugslysa og 47. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 10. febrúar 2010. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |