1. gr. Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur innan almannatryggingakerfisins í júní 2011. 2. gr. Sá sem fékk greiddan elli-, örorku- eða slysalífeyri, skv. 17. gr., 18. gr. eða 2. og 4. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, eða endurhæfingarlífeyri, skv. 7. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, á tímabilinu mars – maí 2011 á rétt á eingreiðslu sem nemur 50.000 kr. 3. gr. Sá sem á tímabilinu mars – maí 2011 fékk greiddan hlutfallslegan elli-, örorku- eða slysalífeyri skv. 17. gr., 18. gr. eða 2. og 4. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, eða hlutfallslegan endurhæfingarlífeyri skv. 7. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, í samræmi við búsetutíma hlutaðeigandi hér á landi á rétt á hlutfallslegri eingreiðslu skv. 2. gr. í samræmi við hlutfall lífeyris vegna búsetu hér á landi. 4. gr. Tryggingastofnun ríkisins skal greiða eingreiðslur skv. 2. og 3. gr. eigi síðar en 20. júní 2011. Eingreiðslur skv. reglugerð þessari skulu ekki hafa áhrif á bætur skv. lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum. 5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., og 15. tölul. ákvæðis til bráðabirgða við lög nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. lög nr. 51/2011, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2011. Guðbjartur Hannesson. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |