1. gr. 57. grein samþykktarinnar verður svohljóðandi: Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar. Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir. Sveitarstjórn kýs formenn og varaformenn byggðarráðs, félagsmálanefndar, fræðslunefndar, tómstunda- og menningarnefndar, skipulags- og byggingarnefndar og umhverfis- og landbúnaðarnefndar. A. Fulltrúar kjörnir til eins árs á fundi í júní ár hvert: Byggðarráð. Þrír sveitarstjórnarmenn og þrír til vara í byggðarráð skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Eingöngu sveitarstjórnarmenn eru kjörgengir í byggðarráð sem aðalmenn. Auk þeirra fulltrúa sem ná kjöri eiga þeir listar sem ekki fá kjörinn fulltrúa í byggðarráð rétt á að tilnefna einn sveitarstjórnarmann sem áheyrnarfulltrúa hver og skal hann hafa málfrelsi og tillögurétt. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi samkvæmt lögum samtakanna.
B. Fulltrúar í fastanefndir kjörnir út kjörtímabilið á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: Félagsmálanefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Nefndin fer með jafnréttismál samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla nr. 10/2008 og málefni samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998. Félagsmálanefnd hefur eftirlit með daggæslu í heimahúsum, umsjón með framkvæmd laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og málefni aldraðra samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999. Nefndin fer með húsnæðismál samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, svo og húsaleigumál samkvæmt húsaleigulögum nr. 36/1994. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Fræðslunefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni leikskóla samkvæmt lögum um málefni leikskóla nr. 90/2008, málefni grunnskóla samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008, málefni tónlistarskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og samkvæmt ákvæðum samstarfssamninga sem um rekstur tónlistarskóla gilda hverju sinni og málefni framhaldsskóla samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 og samstarfssamninga um rekstur framhaldsskóla sem gilda hverju sinni. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Tómstunda- og menningarnefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Nefndin fer með æskulýðsmál skv. lögum um æskulýðsmál nr. 24/1970. Nefndin fer með menningarmál sveitarfélagsins samkvæmt samþykktum þar um. Nefndin fer með stjórn Listasafns Borgarness. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Nefndin fer með skipulags- og byggingarmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, skipulagsreglugerð nr. 400/1998 og byggingarreglugerð nr. 441/1998, með umferðarmál samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987 og með veitumál samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um vatns- og hitaveitur. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Nefndin fer með umhverfis- og náttúruverndarmál samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 44/1999 og landbúnaðarmálefni sbr. lög um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002 og lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64/1994. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Kjörstjórn. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara í kjörstjórn. Kjörstjórn fer með þau verkefni sem henni eru falin samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Undirkjörstjórnir. Sveitarstjórn kýs sex undirkjörstjórnir, eina fyrir hverja kjördeild: Borgarneskjördeild fyrir Borgarnes og Borgarhrepp. Þinghamarskjördeild fyrir Norðurárdals-, Stafholtstungna- og Þverárhlíðarhrepp. Lyngbrekkukjördeild fyrir Álftanes- og Hraunhrepp. Lindartungukjördeild fyrir Kolbeinsstaðahrepp. Kleppjárnsreykjakjördeild fyrir Andakíls-, Lundarreykjadals- og Reykholtsdalshrepp. Brúaráskjördeild fyrir Hvítársíðu- og Hálsahrepp. Í hverja undirkjörstjórn skal kjósa þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara. Undirkjörstjórnir fara með kosningar samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.Fjallskilanefnd. Sjö fulltrúar og jafnmargir til vara. Aðalfulltrúar skulu vera sömu menn og eru formenn afréttar- og fjallskilanefnda skv. 9. lið. Nefndin fer með yfirumsjón fjallskilamála í sveitarfélaginu. Nefndin fer með önnur málefni samkvæmt erindisbréfi sem henni er sett. Afréttar- og fjallskilanefndir. Sveitarstjórn kýs sjö afréttar- og fjallskilanefndir: Fjallskilanefnd Kolbeinsstaðahrepps. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Afréttarnefnd Hraunhrepps. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Afréttarnefnd Álftaneshrepps. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Afréttarnefnd Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Afréttarnefnd fyrir Stafholtstungur, Þverárhlíð, Norðurárdal sunnan Norðurár og Hvítársíðu. Fjórir fulltrúar og jafnmargir til vara. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Fjallskilanefnd Oddstaðaafréttar. Fjórir fulltrúar og jafnmargir til vara. Afréttar- og fjallskilanefndir fara með afréttar- og fjallskilamál undir yfirstjórn sveitarstjórnar. Formenn nefndanna fara með atkvæðisrétt í veiðifélögum fyrir afréttarlandi.Stjórn fólkvangsins í Einkunnum. Þrír fulltrúar og jafn margir til vara samkvæmt samningi sem umhverfisráðherra hefur staðfest í umboði Umhverfisstofnunar. Stjórn Snorrastofu. Tveir fulltrúar og tveir til vara. Skoðunarmenn sveitarsjóðsreikninga. Tveir skoðunarmenn og jafnmargir til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998. Sjálfseignarstofnun Arnarvatnsheiði og Geitland. Einn fulltrúi og annar til vara. Húsnefnd Lindartungu. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur félagsheimilisins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir Lindartungu. Húsnefnd Lyngbrekku. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur félagsheimilisins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir Lyngbrekku. Húsnefnd Valfells. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur félagsheimilisins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir Valfell. Húsnefnd Þinghamars. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur félagsheimilisins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir Þinghamar. Húsnefnd samkomuhússins við Þverárrétt. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur samkomuhússins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir samkomuhúsið við Þverárrétt. Húsnefnd Brúaráss. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur samkomuhússins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir samkomuhúsið Brúarás. Húsnefnd Brúnar. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara. Húsnefndin skal kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og sveitarstjórnar. Húsnefnd fer með rekstur samkomuhússins samkvæmt lögum um félagsheimili og samþykktum fyrir samkomuhúsið Brún. Ungmennaráð. Fimm fulltrúar og jafnmargir til vara. Gerir tillögur til sveitarstjórnar um málefni ungmenna. Ráðið er skipað samkvæmt samþykktum um ungmennaráð. Eldriborgararáð. Átta fulltrúar og jafnmargir til vara. Gerir tillögur til sveitarstjórnar um málefni eldri borgara. Ráðið er skipað samkvæmt samþykktum um eldriborgararáð.
C. Aðrir fulltrúar kjörnir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu sveitarstjórnar til að koma málum í framkvæmd, innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar. Almannavarnanefnd Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara. Stjórn Dvalarheimilis aldraðra. Fjórir fulltrúar og jafnmargir til vara samkvæmt samþykktum fyrir Dvalarheimilið. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara samkvæmt lögum sambandsins. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara samkvæmt lögum um Brunabótafélag Íslands. Húsaverndunarsjóður Borgarbyggðar. Tveir fulltrúar og jafnmargir til vara. Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þrír fulltrúar og jafnmargir til vara samkvæmt samningi um skólann og ákvæðum laga um framhaldsskóla nr. 92/2008. Hagasjóður. Þrír fulltrúar úr fyrrum Hraunhreppi. Stjórnin fer með verkefni samkvæmt skipulagsskrá fyrir Hagasjóð nr. 593/1994. Héraðsnefnd Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Einn fulltrúi og annar til vara. Skólanefnd Laugagerðisskóla. Einn áheyrnarfulltrúi og annar til vara. Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar. Fimm fulltrúar og fimm til vara skv. skipulagsskrá sjóðsins.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 5. maí 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |