1. gr. 3. gr. orðast svo: Á sérhverjum pakka sem inniheldur tóbaksvörur, að undanskildu reyklausu tóbaki, skulu vera eftirfarandi viðvaranir og upplýsingar samkvæmt fylgiskjali: a. Önnur þeirra almennu viðvörunar sem fer hér á eftir: - Reykingar drepa.
- Reykingar eru mjög skaðlegar fyrir þig og þá sem eru nálægt þér.
Viðvaranir þessar skal nota til skiptis og þannig að þær birtist með reglubundnum hætti. Viðvörunin skal prentuð á þann flöt einingarpakkans sem er mest áberandi og á allar ytri umbúðir, að undanskildum gagnsæjum umbúðum, sem eru notaðar í smásölu á vörunni. b. Viðvörunartexti sem fylgir hverri viðvörunarmynd samkvæmt fylgiskjali: - Þeir sem reykja deyja fyrir aldur fram.
- Reykingar stífla slagæðar og valda kransæðastíflu og heilablóðfalli.
- Reykingar valda banvænu krabbameini í lungum.
- Reykingar á meðgöngu skaða barnið þitt.
- Verndaðu börnin: Láttu þau ekki anda að sér tóbaksreyk.
- Læknirinn þinn eða lyfjafræðingur geta hjálpað þér að hætta að reykja.
- Reykingar eru mjög ávanabindandi, byrjaðu ekki að reykja.
- Ef þú hættir að reykja dregur það úr líkum á banvænum hjarta- og lungnasjúkdómum.
- Reykingar geta valdið hægfara og kvalafullum dauða.
- Fáðu hjálp við að hætta að reykja: Sími 800 6030.
- Reykingar geta dregið úr blóðflæði og valda getuleysi.
- Reykingar flýta fyrir öldrun húðarinnar.
- Reykingar geta skaðað sæði og draga úr frjósemi.
- Tóbaksreykur inniheldur bensen, nítrósamín, formaldehýð og blásýru.
Viðvaranir þessar skulu notaðar til skiptis og þannig að tryggt sé að þær birtist með reglubundnum hætti. Viðvörun skal prentuð á hinn flöt einingarpakkans sem er mest áberandi þannig að snið og hlutföll frumskjalsins og myndræn heild myndar og texta haldist. Viðvörunin skal einnig vera á öllum ytri umbúðum, að undanskildum gagnsæjum umbúðum, sem eru notaðar í smásölu á vörunni. c. Upplýsingar um þá aðstoð sem í boði er fyrir þá sem vilja hætta að reykja samkvæmt fylgiskjali: - Fáðu hjálp við að hætta að reykja á reyklaus.is.
- Fáðu hjálp við að hætta að reykja í síma 800 6030.
- Fáðu hjálp við að hætta að reykja í síma 800 6030 eða á reyklaus.is.
Upplýsingar þessar skulu birtar sem hluti viðvörunarmynda sem getið er í b-lið þessarar greinar, í samræmi við fyrirmyndir í fylgiskjali. 2. gr. 4. mgr. 7. gr. orðast svo: Upplýsingar skv. c-lið 3. gr. skulu vera prentaðar innan viðvörunarramma sbr. e-lið 2. mgr. 3. gr. Nýtt fylgiskjal kemur í stað hins eldra og er það birt með reglugerð þessari. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 6. og 8. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 14. desember 2011. Guðbjartur Hannesson. Vilborg Ingólfsdóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |