1. gr. Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar orðskýringar, sem hafa þá merkingu sem hér greinir: Forgangsröðun skoðana á hlaði (prioritisation of ramp inspections): Sérstök ráðstöfun á viðeigandi hluta af heildarfjölda skoðana á hlaði sem framkvæmdar eru af hálfu aðildarríkis ár hvert, eins og kveðið er á um í 4. gr. a. Viðfang (subject): Flugrekandi og/eða allir flugrekendur frá tilteknu ríki og/eða gerð loftfars og/eða tiltekið loftfar. 2. gr. Ný grein, 4. gr. a, bætist við á eftir 4. gr., sem orðast svo ásamt fyrirsögn: 4. gr. a Viðmiðanir við forgangsröðun. Flugmálastjórn Íslands skal forgangsraða hlaðskoðunum eftirtalinna viðfanga, lendi þau á alþjóðlegum flugvelli á Íslandi, að teknu tilliti til 4. gr.: - Viðföng, sem á grundvelli reglubundinnar greiningar Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA), eru talin geta ógnað öryggi.
- Viðföng sem flugöryggisnefndin hefur bent á, í áliti sínu á grundvelli reglugerðar um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur sem ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur, að þurfi á frekari kerfisbundnum hlaðskoðunum að halda, til að þau geti sýnt fram á að þau uppfylli viðkomandi öryggisstaðla. Þetta getur tekið til viðfanga sem hafa verið tekin af skránni yfir flugrekendur sem bannað hefur verið flug inn til Evrópska efnahagssvæðisins.
- Viðföng sem auðkennd hafa verið eftir ábendingar frá aðildarríkjunum eða Flugöryggisstofnun Evrópu, á grundvelli reglugerðar um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur sem ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
- Loftför sem eru starfrækt í flugi til landa innan Evrópska efnahagssvæðisins af flugrekendum sem tilgreindir eru í viðauka B við skrá yfir flugrekendur sem ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
- Loftför sem starfrækt eru af öðrum flugrekendum sem hafa fengið útgefið flugrekstrarleyfi frá sama ríki og flugrekandi sem á sama tíma er tilgreindur á skrá yfir flugrekendur sem ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
3. gr. 1. mgr. 5. gr. orðist svo: Skoðun á hlaði skal fara fram í samræmi við verklagsreglur Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, sem og verklagsreglur sem lýst er í III. viðauka við reglugerð þessa. Skrá skal tafarlaust upplýsingar um framkvæmd skoðunar á þar til gerð eyðublöð sem í gildi eru hverju sinni samkvæmt framangreindum verklagsreglum. Upplýsingarnar skulu færðar í miðlægan gagnagrunn Flugöryggisstofnunar Evrópu. 4. gr. Við 7. gr. bætast tvær nýjar málsgreinar, 4. og 5. mgr., sem orðast svo: Flugöryggisstofnun Evrópu sendir lista yfir þau viðföng sem nefnd eru í 4. gr. a með rafrænum hætti til aðildarríkjanna, a.m.k. á fjögurra mánaða fresti. Flugöryggisstofnun Evrópu hefur eftirlit með forgangsröðunarferlinu og veitir aðildarríkjunum nauðsynlegar upplýsingar til að gera þeim kleift að fylgjast með framþróun í Bandalaginu að því er varðar forgangsröðun skoðana á viðföngum sem um getur í 4. gr. a, þar á meðal tölfræðileg gögn um flugumferð sem máli skipta. Upplýsingagjöf er veitt í samvinnu við þar til bærar alþjóðastofnanir á sviði flugmála. 5. gr. Innleiðing. Við 1. mgr. 15. gr. bætist nýr stafliður, sem orðast svo: c. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 351/2008 frá 16. apríl 2008 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/36/EB að því er varðar forgangsröðun skoðana á hlaði á loftförum sem nota flugvelli Bandalagsins, sem birtist í viðauka IV við reglugerð þessa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 14/2009 frá 30. janúar 2009. 6. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr., 27. gr., sbr. 145. gr. og 146. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og 2. mgr. 4. gr., 5. gr., 7. gr. og 12. gr. laga um Flugmálastjórn Íslands nr. 100/2006 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 26. febrúar 2009. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. VIÐAUKAR (sjá PDF-skjal) |