1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar: - Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Gjald sjúkratryggðs vegna kaupa á lyfjum verður hlutfallsgjald og þrepaskipt eftir uppsöfnuðum lyfjakostnaði sjúkratryggðs, sbr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar.
- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein svohljóðandi:
Veiti lyfjabúð sjúkratryggðum afslátt frá greiðsluþátttökuverði skal tilkynna Sjúkratryggingum Íslands um afsláttinn og reiknar stofnunin gjald sjúkratryggðs miðað við þrepastöðu viðkomandi. - Í stað „24.075 kr.“ í 1. og 2. málsl. 4. mgr. kemur: 22.000 kr.
- Í stað „24.075 kr.“ í 1. tölul. 4. mgr. kemur 22.000 kr. og í stað „96.300 kr.“ kemur: 87.000 kr.
- Í stað „96.300 kr.“ í 2. tölul. 4. mgr. kemur: 87.000 kr.
- Í stað „69.416 kr.“ í 5. mgr. kemur: 62.000 kr.
- Í stað „16.050 kr.“ í 1. og 2. málsl. 6. mgr. kemur: 14.500 kr.
- Í stað „16.050 kr.“ í 1. tölul. 6. mgr. kemur: 14.500 kr. og í stað „64.200 kr.“ kemur: 57.000 kr.
- Í stað „64.200 kr.“ í 2. tölul. 6. mgr. kemur: 57.000 kr.
- Í stað „46.277 kr.“ í 7. mgr. kemur: 41.000 kr.
2. gr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott. 3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar: - Í stað „39 kr.“ í 2. tölul. 2. mgr. kemur: 40 kr.
- Í stað „38 kr.“ í 3. tölul. 2. mgr. kemur: 39 kr.
- Í stað 3. mgr. koma tvær málsgreinar, svohljóðandi:
Hagkvæmustu pakkningar í flokknum M 05 B eru metnar út frá verði á skilgreindum dagskammti í pakkningu og taka sjúkratryggingar þátt í greiðslu þeirra pakkninga sem innihalda dagskammta á greiðsluþátttökuverði: 47 kr. eða lægra. Hagkvæmustu pakkningar í flokknum N 05 A eru metnar út frá verði á skilgreindum dagskammti í pakkningu skammtaðra lyfjaforma og taka sjúkratryggingar þátt í greiðslu þeirra pakkninga sem innihalda dagskammta á greiðsluþátttökuverði: 605 kr. eða lægra. 4. gr. 1. tölul. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í lausasölulyfjum sem lyfjagreiðslunefnd hefur ákveðið að veita almenna greiðsluþátttöku. Miðað er við stærstu pakkningar til nota í langtímameðferð. Ef þeim er ávísað með lyfseðli, þá er greitt skv. 4. gr. 5. gr. Á eftir orðinu „göngudeild“ í lok 1. mgr. 15. gr. kemur: eða dagdeild og inniliggjandi sjúklingum á heilbrigðisstofnunum. 6. gr. Á eftir orðunum „laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum“ í fyrri málsl. 18. gr. reglugerðarinnar kemur: og 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum. 7. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 25. gr., 1. mgr. 29. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, og 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Sveinn Magnússon. |