1. gr. Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr.: Liðir 104 og 118 orðist svo: 104 | Tannsteinshreinsun | 2.670 | 1.780 | 118 | Flúormeðferð áhættueinstaklinga | 4.215 | 2.810 |
2. gr. Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni, er sett með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 698/2010 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar, sbr. síðari breytingar, öðlast þegar gildi og tekur til þeirrar þjónustu sem veitt er á tímabilinu 1. júlí til og með 31. desember 2012. Sjúkratryggingum Íslands, 10. október 2012. Steingrímur Ari Arason. Katrín Hjörleifsdóttir. |