Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 217/2009

Nr. 217/2009 6. febrúar 2009

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og eyðingu sorps í Hvalfjarðarsveit.

1. gr.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skal, skv. 5. gr. samþykktar nr. 582/2008 um með­höndlun úrgangs í Hvalfjarðarsveit, innheimta gjald fyrir meðhöndlun og förgun úr­gangs í sveitarfélaginu.

2. gr.

Sorphirðugjaldið árið 2009 er sem hér greinir:

 

vegna sumarhúss (frístundahúss)

9.500 kr.

 

vegna íbúðarhúsnæðis

14.175 kr.

3. gr.

Sorphirðugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum. Gjalddagar fasteignagjalda verða 7 talsins á mánaðar fresti, 15. hvers mánaðar. Í febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí og ágúst.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar með stoð í 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi.

Samþykkt í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 9. desember 2008.

Hvalfjarðarsveit, 6. febrúar 2009.

Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 25. febrúar 2009

  Til baka