1. gr. Frá og með 19. júní til og með 30. júní 2013 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 304/2013, um strandveiðar fiskveiðiárið 2012/2013. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 5. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 304/2013, um strandveiðar fiskveiðiárið 2012/2013, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Fiskistofu, 14. júní 2013. Hrefna Gísladóttir, sviðsstjóri fiskveiðistjórnunarsviðs. Jón Valgeir Guðmundsson. |