1. gr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Grænlenskum skipum er heimilt að veiða samtals 53.740 lestir af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands. Eftir 15. febrúar og sunnan 64°30´N er grænlenskum skipum þó einungis heimilt að veiða 23.000 lestir. 2. gr. Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson. |