1. gr. Tilvísanir og hámarksgildi fyrir histamín, patúlín, PCP toxín og tin í viðauka 2 um hámarksgildi ýmissa aðskotaefna í neysluvörum falla brott. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 56/2005 um breytingu á reglugerð nr. 411/2004 um ýmis aðskotaefni í matvælum. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010. Jón Bjarnason. Baldur P. Erlingsson. |