Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 663/2008

Nr. 663/2008 18. júní 2008
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grímsnes- og Grafningshrepps, nr. 88/2001, með síðari breytingum.

1. gr.

2. tölul. 49. gr. samþykktarinnar fellur brott.

2. gr.

Í stað orðsins

„Skipulagsnefnd“ í 7. tölul. 49. gr. samþykktarinnar komi:

Sameiginleg skipulags- og bygginganefnd Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps.

3. gr.

Númer tölul. 49. gr. samþykktarinnar breytast í samræmi við ofangreinda breytingu skv. 1. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 18. júní 2008.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 4. júlí 2008