1. gr. Markmið. Markmið þessarar reglugerðar, er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) eins og nánar greinir í 2. gr. sbr. reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nr. 612/2005, með síðari breytingum. 2. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 593/2007 frá 31. maí 2007 um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2007 frá 7. desember 2007, sem er birt í EES-viðbæti nr. 26, bls. 27. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari. 3. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Frá og með sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1044/2007 sama efnis. Samgönguráðuneytinu, 5. febrúar 2009. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |