Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 546/2010

Nr. 546/2010 15. júní 2010
REGLUR
um Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Stofnunin er vettvangur samstarfs Háskóla Íslands við opinbera aðila um eflingu náms og rannsókna um stjórnun opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga, og vettvangur umræðna um stjórnmál og stjórnsýslu.

Stofnunin heyrir undir stjórnmálafræðideild á félagsvísindasviði. Hún starfar sem sjálf­stæður aðili í tengslum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

Forseti félagsvísindasviðs gerir samstarfssamninga um stofnunina við aðila utan Háskóla Íslands.

2. gr.

Hlutverk.

Hlutverk Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er:

  1. að efla framhaldsnám, starfsmenntun, rannsóknir og nýsköpun á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði innan stjórnmálafræðideildar,
  2. að standa að samstarfs- og samræðuvettvangi fræðimanna í þeim tilgangi að auka samstarf, efla rannsóknir og nýsköpun á fræðasviðum stjórnmálafræði­deildar,
  3. að aðstoða við öflun samstarfsaðila, öflun fjár, ráðgjöf, framkvæmd og utanum­hald rannsóknarverkefna eftir atvikum í samvinnu við Félagsvísinda­stofnun,
  4. að efla tengsl milli fræðasamfélagsins í Háskóla Íslands og forystumanna í þjóðlífi (stjórnmálamanna, stjórnsýslunnar, forystumanna atvinnulífs og hagsmuna­samtaka), m.a. með fundum, ráðstefnum og útgáfu,
  5. að stuðla að þverfaglegri samvinnu innan Háskóla Íslands á sviði stjórnsýslu og stjórnmála,
  6. að stuðla að alþjóðlegri samvinnu og samstarfsverkefnum á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði,
  7. að veita ráðgjöf um stefnumótun vegna framhaldsnáms stjórnmálafræðideildar,
  8. að halda utan um gagnasafn stjórnmálafræðideildar,
  9. að sinna kynningarstarfi fyrir stjórnmálafræðideild og veita framhaldsnemendum ýmsa þjónustu,
  10. að standa fyrir námskeiðahaldi, ráðstefnum og málþingum á sviði stjórnsýslu og stjórnmála og miðlun upplýsinga þar um,
  11. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna, m.a. ritröð um íslenska stjórnmála­fræði, auk þess að hafa umsjón með útgáfu á tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla,
  12. að skapa lifandi umræðuvettvang um stjórnmálafræði og stjórnsýslu,
  13. að sinna þjónustu á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræði fyrir félagsvísindasvið og aðra aðila, innan og utan Háskóla Íslands.

3. gr.

Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.

Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.

Stjórn.

Forseti félagsvísindasviðs skipar stofnuninni sex manna stjórn til þriggja ára. Deildarfundur í stjórnmálafræðideild tilnefnir þrjá menn í stjórnina og rektor Háskóla Íslands einn. Forseti félagsvísindasviðs skipar tvo stjórnarmenn án tilnefningar m.a. frá samstarfsaðilum stofnunarinnar sem samningar hafa verið gerðir við, sbr. 1. gr. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall hvors kyns sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Stjórnin kýs sér formann úr hópi fulltrúa stjórnmálafræðideildar.

5. gr.

Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrir­vara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.

Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti stjórnmálafræðideildar, forseti félagsvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formanns­störfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundar­gerða skulu send forseta stjórnmálafræðideildar.

6. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfs­reglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild og forseta félagsvísinda­sviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar og forseta fræðasviðs um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.

7. gr.

Forstöðumaður og starfsmenn.

Heimilt er að ráða stofnuninni forstöðumann. Forseti félagsvísindasviðs ræður forstöðu­mann að fenginni tillögu stjórnar stofnunarinnar.

Forstöðumaður stofnunarinnar annast daglegan rekstur hennar, þar á meðal eftirlit með starfsmönnum hennar, fjármálum og rannsóknarverkefnum. Forseti félagsvísindasviðs setur forstöðumanni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans.

Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið.

8. gr.

Fjármál.

Tekjur stofnunarinnar eru eftirfarandi:

  1. framlag frá stjórnmálafræðideild,
  2. framlag frá samstarfsaðilum,
  3. styrkir til einstakra verkefna,
  4. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  5. tekjur af útgáfustarfsemi, námskeiða- og ráðstefnuhaldi,
  6. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Stofnunin hefur sjálfstætt fjárhald en stjórnmálafræðideild og forseti félagsvísindasviðs bera á henni fjárábyrgð. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar á deildarfundi og samþykkt af forseta félagsvísindasviðs. Uppgjör skal kynnt forseta stjórnmála­fræði­deildar og forseta félagsvísindasviðs.

Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starf­semi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnis­laga.

Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

9. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu stjórnmálafræðideildar og stjórnar félagsvísindasviðs, öðlast þegar gildi.

Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 495/2002 um Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 2. júlí 2010