Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 707/2012

Nr. 707/2012 16. ágúst 2012
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 770, 8. september 2006, um veiðar á íslenskri sumargotssíld, með síðari breytingum.

1. gr.

Við reglugerðina kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Frá 22. ágúst til 9. september 2012 eru síldveiðar í flottroll eingöngu heimilar utan 200 m dýptarlínu en þó hvergi nær landi en 12 sjómílur frá viðmiðunarlínu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 16. ágúst 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 20. ágúst 2012