HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru: 1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna: a. Í stað orðsins „ráðuneytisins“ í 1. mgr. kemur: Byggðastofnunar. b. Í stað orðsins „Ráðuneytið“ í 2. mgr. kemur: Byggðastofnun.
2. gr.
Í stað orðanna „31. desember 2012“ í 11. gr. laganna kemur: 31. desember 2013.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 28. desember 2012. Jóhanna Sigurðardóttir. | Ásta R. Jóhannesdóttir. (L. S.) | Markús Sigurbjörnsson. |
Steingrímur J. Sigfússon. |