Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 400/2014

Nr. 400/2014 23. apríl 2014
REGLUGERÐ
um notkun mjólkursýru til að draga úr örverufræðilegri mengun á yfirborði nautgripaskrokka.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 154/2013, frá 9. október 2013, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 101/2013 frá 4. febrúar 2013 um notkun mjólkursýru til að draga úr örverufræðilegri mengun á yfirborði naut­gripa­skrokka. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 10. október 2013, bls. 487.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. apríl 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2014