Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1094/2011

Nr. 1094/2011 30. nóvember 2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 214, 15. mars 2010 um humarveiðar, með síðari breytingum.

1. gr.

Við reglugerðina bætist svohljóðandi bráðabirgðaákvæði:

Skipum er heimilt að stunda humarveiðar til og með 31. desember 2011.

Veiðieftirlitsmenn skulu vera um borð í skipum sem stunda veiðar á þessu tímabili eins lengi og þurfa þykir, samkvæmt nánari fyrirmælum Fiskistofu. Tilkynna skal Fiskistofu um fyrirhugaða brottför eigi síðar en einum virkum degi fyrir upphaf veiðiferðar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. nóvember 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði B. Ármannsson.

B deild - Útgáfud.: 1. desember 2011