Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 133/2013

Nr. 133/2013 14. febrúar 2013
AUGLÝSING
(VII) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlut­unar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Sveitarfélagið Árborg.

Ákvæði reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2012.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skil­yrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan land­aðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2012.

c)

2. mgr. 4. gr. fellur brott.

d)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla, sem telja á til byggðakvóta, til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2013.

Blönduósbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipta 37,5% úthlutaðs byggðakvóta jafnt, 25% skal skipt í hlutfalli við hlut­deild í Húnaflóarækju miðað við hlutdeild skipanna 1. september 2012 og 37,5% verði skipt miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.

b)

Ákvæði 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan Blönduóss á tímabilinu frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

Vopnafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopnafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, skal skipt þannig: ¼ hluta úthlutaðs byggðakvóta eftir brúttótonnum þeirra báta/skipa og ¼ byggðakvótans jafnt, ½ byggðakvótans skal skipt hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, sem landað var á Vopnafirði á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.

b)

Ekkert fiskiskip yfir 1.000 brúttótonnum fær úthlutun.

c)

Ákvæði 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á Vopnafirði á tímabilinu frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

Ísafjarðarbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 gilda um úthlutun byggðakvóta byggðarlaga í Ísafjarðarbæ með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði a-liðar 1. gr. breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, eða frístunda­veiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.

b)

Ákvæði b-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 8. nóvember 2012.

c)

Ákvæði c-liðar 1. gr. breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 8. nóvember 2012.

d)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012.

e)

Við 1. mgr. 4. gr. bætist nýr málsl., svohljóðandi: Af endurúthlutun byggða­kvóta fiskveiðiársins 2011/2012 vegna Ísafjarðar fari að hámarki 12 tonn á bát.

Sveitarfélagið Vogar.

Ákvæði reglugerðar nr. 628 frá 13. júlí 2012 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitar­félagsins Voga með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Blönduósbæjar um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2012/2013, samkvæmt auglýsingu nr. 1045 frá 6. desember 2012 og Vopnafjarðarhrepps samkvæmt auglýsingu nr. 1074 frá 13. desember 2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. febrúar 2013.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Sigríður Norðmann.

B deild - Útgáfud.: 14. febrúar 2013