Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Laufásveg 7, Reykjavík, Þrúðvang. Friðunin nær til ytra byrðis og útskorinna hurða og lágmynda í stofum hússins ásamt aðalhurð og stiga. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 8. mars 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |