Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 155/2009

Nr. 155/2009 20. janúar 2009
REGLUGERÐ
um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi alþýðulýðveldið Kongó (Austur-Kongó).

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um þvingunaraðgerðir varðandi alþýðulýðveldið Kongó nr. 1493 (2003), 1533 (2004), 1596 (2005), 1649 (2005), 1698 (2006), 1771 (2007), 1807 (2008) og 1857 (2008) og ákvörðunum framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir varðandi alþýðulýðveldið Kongó, sbr. ályktun nr. 1533 (2004).

Ákvarðanir framkvæmdanefndarinnar, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri hennar (http://www.un.org/sc/committees/1533/index.shtml).

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Vopnasölubann.

Vopnasölubann skal gilda gagnvart alþýðulýðveldinu Kongó, sbr. 1. mgr. ályktunar nr. 1857 (2008).

3. gr.

Landgöngubann.

Einstaklingum, sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndin tilgreinir, sbr. I. viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 13. og 14. mgr. ályktunar nr. 1596 (2005), 6. mgr. ályktunar nr. 1771 (2007) og 3.-5. mgr. ályktunar nr. 1857 (2008).

4. gr.

Frysting fjármuna.

Frysta skal fjármuni og efnahagslegan auð í eigu aðila sem öryggisráðið eða framkvæmdanefndin tilgreinir, sbr. I. viðauka, sbr. 15. mgr. ályktunar nr. 1596 (2005), 2. mgr. ályktunar nr. 1649 (2005), 6. mgr. ályktunar nr. 1771 (2007) og 3.-5. mgr. ályktunar nr. 1857 (2008).

5. gr.

Bann við fjárhagsaðstoð.

Óheimilt er að veita vopnuðum hópum og samtökum í alþýðulýðveldinu Kongó fjárhagsaðstoð, sbr. 18. mgr. ályktunar nr. 1493 (2003).

6. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til á grundvelli ályktana öryggisráðsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

7. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

8. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 20. janúar 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Benedikt Jónsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2009