Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 147/2015

Nr. 147/2015 6. febrúar 2015
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1042/2013, um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr.:

  1. 1. mgr. orðast svo: Íbúðalánasjóði er óheimilt að lána til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum sem fara yfir það hámarksverð sem tiltekið er í ákvæði þessu og miðast við fermetrafjölda íbúðar. Skal hámarksverð íbúða skv. 1. málsl. vera sem hér segir:
    1. Allt að 60 m² íbúðir: 22.717.000 kr.
    2. Allt að 70 m² íbúðir sem eru stærri en 60 m²: 25.054.000 kr.
    3. Allt að 90 m² íbúðir sem eru stærri en 70 m²: 29.728.000 kr.
    4. Allt að 105 m² íbúðir sem eru stærri en 90 m²: 33.234,000 kr.
    5. Allt að 120 m² íbúðir sem eru stærri en 105 m²: 36.740.000 kr.
    6. Allt að 130 m² íbúðir sem eru stærri en 120 m²: 39.077.000 kr.
  2. 3. mgr. orðast svo: Hámarksverð skv. 1. mgr. kemur til endurskoðunar í janúar ár hvert og skal vera í heilum þúsundum króna.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 23. gr.:

  1. Í stað „4.203.000 kr.“ kemur: 4.329.000 kr.
  2. Í stað „703.000 kr.“ kemur: 724.000 kr.
  3. Í stað „5.886.000 kr.“ kemur: 6.063.000 kr.

3. gr.

Í stað „4.537.000 kr.“ í 1. mgr. 24. gr. kemur: 4.673.000 kr.

4. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 6. febrúar 2015.

Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Bolli Þór Bollason.

B deild - Útgáfud.: 16. febrúar 2015