1. gr. Við 6. gr. bætist ný málsgrein sem orðast svo: Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra veitir leiðbeiningar um form og efnisatriði slíkra tilkynninga, t.d. með útgáfu sérstaks eyðublaðs í þessu skyni. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 19. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64, 14. júní 2006, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 15. ágúst 2008. Björn Bjarnason. Gunnar Narfi Gunnarsson. |