1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2015, frá 26. febrúar 2015, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 709/2014 frá 20. júní 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 152/2009 að því er varðar ákvörðun á innihaldi díoxína og fjölklóraðra bífenýla. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 19. mars 2015, bls. 805. 2. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. 3. gr. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. 4. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. apríl 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson. |