1. gr. Frá og með 9. ágúst 2012 eru strandveiðar bannaðar á svæði B, frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 206, 29. febrúar 2012, um strandveiðar fiskveiðiárið 2011/2012. 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 206, 29. febrúar 2012, um strandveiðar fiskveiðiárið 2011/2012, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 7. ágúst 2012. F. h. r. Hrefna Karlsdóttir. Arnór Snæbjörnsson. |