1. gr. Almennt. Lífvísindasetur Háskóla Íslands (e. Biomedical Center, BMC) er rannsóknarstofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Lífvísindasetur er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum lífvísinda og heyrir formlega undir læknadeild heilbrigðisvísindasviðs, sbr. 27. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Um samvinnu Lífvísindaseturs við aðrar deildir og fræðasvið HÍ og við aðrar stofnanir skal gerður sérstakur samningur um samstarfið og fjármál því tengd. Slíkur samningur tekur gildi að fenginni staðfestingu viðeigandi stofnunar, deildarfundar og/eða stjórnar þess fræðasviðs sem deild tilheyrir og að fenginni samþykkt læknadeildar. 2. gr. Hlutverk. Hlutverk Lífvísindaseturs er: - að skapa sameiginlegan vettvang þeirra sem stunda rannsóknir á sviði lífvísinda við Háskóla Íslands og tengdar stofnanir,
- að efla rannsóknir í lífvísindum og tengsl rannsókna og kennslu,
- að auka sýnileika rannsókna á þessu sviði við Háskóla Íslands og tengdar stofnanir,
- að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði lífvísinda, læknisfræði og í öðrum heilbrigðisvísindagreinum og efla tengsl við atvinnu- og þjóðlíf,
- að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í lífvísindum,
- að veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi málefni tengd lífvísindum,
- að gangast fyrir ráðstefnum, námskeiðum og fyrirlestrum í lífvísindum.
3. gr. Skipulag. Aðild að Lífvísindasetri eiga allir þeir rannsóknarhópar við Háskóla Íslands sem starfa á sviði lífvísinda og læknisfræði og óska eftir aðild. Við Lífvísindasetur starfa einstakir rannsóknarhópar sem sinna rannsóknum á sviði lífvísinda, í samræmi við 27. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands. Hver rannsóknarhópur er ábyrgur fyrir eigin rannsóknum og rekstri eigin rannsóknarverkefna. Stjórn Lífvísindaseturs setur hverjum rannsóknarhópi starfsreglur þar sem m.a. kemur fram hverjir standa að hópnum og tengsl hans og Lífvísindaseturs eru nánar tilgreind. Hópstjóri (e. principal investigator) er fyrir hverjum hópi og ber á honum fjárhagslega ábyrgð. Lífvísindasetur mun standa fyrir uppbyggingu sameiginlegrar aðstöðu til rannsókna á sviði lífvísinda með rekstri sameiginlegrar rannsóknaraðstöðu, með sameiginlegum tækjakaupum, með skipulegri kynningarstarfsemi og með annarri starfsemi sem eflir rannsóknir á sviði líf- og læknisfræði við HÍ. Þeir rannsóknarhópar sem aðild eiga að Lífvísindasetri munu taka þátt í rekstri þess eftir því sem kostur er. 4. gr. Aðstaða. Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er. Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 8. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er. 5. gr. Stjórn. Forseti heilbrigðisvísindasviðs skipar fimm manna stjórn Lífvísindaseturs til þriggja ára í senn. Í stjórninni skal vera formaður, valinn án tilnefningar í samráði við forseta læknadeildar, þrír fulltrúar tilnefndir sameiginlega af hópstjórum rannsóknarhópa sem aðild eiga að Lífvísindasetrinu og einn fulltrúi nemenda sem valinn er til eins árs í senn af nemendum í doktorsnámi. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Stjórnarfundi skal halda minnst þrisvar sinnum á ári. Jafnframt fundar stjórnin með deildarráði læknadeildar minnst einu sinni á ári. Stjórn er heimilt að skipa úr hópi stjórnarmanna þriggja manna framkvæmdastjórn sem formaður stýrir. 6. gr. Stjórnarfundir. Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef deildarforseti læknadeildar, forseti heilbrigðisvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum. Fundargerðir skulu birtar á heimasíðu heilbrigðisvísindasviðs og heimasíðu Lífvísindaseturs. Ef forstöðumaður er ráðinn til stofnunarinnar án þess að eiga sæti í stjórninni situr hann stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar. 7. gr. Verkefni stjórnar. Stjórn fjallar um öll málefni Lífvísindaseturs, mótar starfsemi þess, ber ábyrgð á fjármálum þess gagnvart forseta fræðasviðs, semur fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildarforseta læknadeildar og forseta fræðasviðs um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna. Stjórn sker úr vafaatriðum er upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunar. Stjórn undirbýr ásamt forstöðumanni rekstrar- og fjárhagsáætlun og samþykkir þjónustuverkefni sem setrið tekur að sér í samræmi við reglur þar um. Heimilt skal að framselja ákvörðunarvald um smærri verkefni til forstöðumanns. Stjórn Lífvísindaseturs efnir til ársfundar með forsvarsmönnum rannsóknastofa við Lífvísindasetrið, deildarráði læknadeildar og stjórn heilbrigðisvísindasviðs þar sem ársskýrsla er lögð fram og önnur mál, svo sem kveðið er á um í reglum fyrir Háskóla Íslands. 8. gr. Starfslið. Heimilt er að ráða forstöðumann að stofnuninni. Forseti heilbrigðisvísindasviðs ræður forstöðumann á grundvelli umsagnar stjórnar stofnunarinnar og að fenginni tillögu deildarráðs læknadeildar. Forseti fræðasviðs setur forstöðumanni erindisbréf. Ef heimild skv. 1. mgr. er ekki nýtt er stjórnarformaður jafnframt forstöðumaður stofnunarinnar. Forstöðumaður skal hafa doktorspróf eða samsvarandi menntun ásamt þekkingu á aðferðafræði og reynslu af vinnu við rannsóknir. Æskilegt er að forstöðumaður þekki styrkja- og rannsóknaumhverfi á Íslandi og erlendis og hafi reynslu af stjórnun rannsóknarverkefna og vinnu við umsóknir í rannsóknasjóði. Þekking á viðfangsefnum rannsakenda í lífvísindum er einnig nauðsynleg. Forstöðumaður stýrir daglegum rekstri setursins í samráði við stjórn og situr fundi stjórnar. Hann framfylgir markmiðum setursins, en leggur sérstaka áherslu á stuðning við rannsóknir starfsmanna við fræðasviðið og uppbyggingu rannsókna á verksviði heilbrigðisvísindasviðs. Forstöðumaðurinn tilheyrir stjórnsýslu heilbrigðisvísindasviðs. Um ráðningu forstöðumanns og annars starfsfólks fer að öðru leyti eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. 9. gr. Fjármál. Tekjur Lífvísindaseturs Háskóla Íslands eru eftirfarandi: greiðslur fyrir þjónustu við umfangsmikil verkefni, greiðslur fyrir fræðslu, greiðslur fyrir aðra þjónustustarfsemi, tekjur af fræðslufundum og ráðstefnum sem Lífvísindasetur stendur fyrir, aðrar tekjur, t.d. framlög frá Háskóla Íslands, styrkir frá hinu opinbera eða einkaaðilum, gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið er á um í fjárlögum, framlag frá læknadeild og heilbrigðisvísindasviði. Tekjur sínar notar Lífvísindasetur til eigin rekstrar, í sameiginlega sjóði setursins og til að skapa rannsóknastofunum fjárhagslegan grundvöll. Reikningshald Lífvísindaseturs og rannsóknarhópa þess skal vera hluti af reikningshaldi háskólans í umsjón skrifstofustjóra læknadeildar. Lífvísindasetri og rannsóknarhópum sem innan þess starfa er heimilt að taka að sér þjónustuverkefni gegn gjaldi. Ef um er að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands. 10. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu læknadeildar og stjórnar heilbrigðisvísindasviðs, öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 1. desember 2011. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |