Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 961/2005

Nr. 961/2005 8. nóvember 2005
REGLUGERÐ
um fullnustu refsinga.

1. gr.

Hlutverk fangelsismálastofnunar.

Hlutverk fangelsismálastofnunar er:

1. Að sjá um fullnustu refsidóma. Fangelsismálastofnun framsendir lögreglustjóra sektardóma til fullnustu og sakarkostnað til innheimtu.

2. Að annast eftirlit með þeim sem frestað er ákæru gegn, dæmdir eru skilorðsbundið og gert að sæta eftirliti, fá skilorðsbundna reynslulausn, náðun eða frestun afplánunar.

3. Að sjá um að í fangelsum sé veitt sérhæfð þjónusta svo sem kveðið er á um í lögum og öðrum reglugerðum.

4. Að annast önnur verkefni í samræmi við ákvæði laga um fullnustu refsinga og reglugerða settra samkvæmt þeim, svo sem að halda utan um tölulegar upplýsingar á sviði stofnunarinnar og þar með stuðla að rannsóknum á sviði fangelsismála.

2. gr.

Meðferðar- og vistunaráætlun o.fl.

Fangelsismálastofnun skal í samvinnu við fanga gera meðferðar- og vistunaráætlun í upphafi refsivistar hans með tilliti til lengdar refsingar og persónulegra haga fangans. Í áætluninni skal meðal annars koma fram áhættumat, meðferðarþörf, geta til náms og/eða vinnu, og þörf fyrir sálfræðilegan, félagslegan og annan stuðning. Vinna skal eftir þessari áætlun með fanga á afplánunartímanum af menntuðu og þjálfuðu starfsfólki og skal endurskoða hana reglulega.

Markmið meðferðar- og vistunaráætlunarinnar er að fangi nái, eftir lok afplánunar, að fóta sig í samfélaginu, hann kunni að leita sér aðstoðar, hann eigi fastan samastað og hafi góð tengsl við fjölskyldu og/eða vini.

3. gr.

Vinna í fangelsi.

Matarhlé telst ekki til vinnutíma.

Þegar fangi getur ekki af trúarástæðum unnið tilgreindan vikudag skal tekið tillit til þess, eftir því sem aðstæður leyfa. Í slíku tilviki getur forstöðumaður fangelsis ákveðið að fangi uppfylli vinnuskyldu með öðrum hætti.

4. gr.

Þóknun og dagpeningar.

Fangelsismálastofnun skal setja gjaldskrá um þóknun fyrir vinnu og nám, upphæð dagpeninga fanga og greiðslufyrirkomulag. Þóknun fyrir hverja klukkustund fer eftir eðli starfs. Fangi í námi skal fá þóknun fyrir hverja kennslustund, en þó ekki fyrir fleiri kennslustundir en fimm á dag. Þóknun og dagpeningar skulu greiddir eftir á og að lágmarki á tveggja vikna fresti. Gjaldskráin skal endurskoðuð árlega.

Heimilt er að greiða þóknun samkvæmt ákvæðislaunakerfi eða bónuskerfi í sérstökum tilvikum eða vegna sérstakra verkefna enda hafi fangelsismálastofnun samþykkt slíkt fyrirkomulag fyrirfram.

5. gr.

Nám, vinna eða starfsþjálfun utan fangelsis.

Við mat á því hvort heimila skuli fanga að stunda nám, vinnu eða vera í starfsþjálfun utan fangelsis skal taka tillit til afbrots og sakar- og afplánunarferils hans. Einnig skal taka tillit til hegðunar fangans í fangelsi og þess hvort hann hafi notfært sér meðferðarúrræði sem til boða hafa staðið í fangelsi. Að öðru leyti ber að hafa til hliðsjónar skilyrði fyrir veitingu dagsleyfa samkvæmt lögum um fullnustu refsinga.

6. gr.

Dvöl ungbarna í fangelsum.

Leyfa má konu, í samráði við barnaverndarnefnd, að hafa ungbarn sitt hjá sér í fangelsi fyrstu mánuði ævi þess, og að jafnaði þar til það verður 18 mánaða að aldri, enda sé það ekki talið andstætt hagsmunum barnsins.

7. gr.

Fyrirkomulag heimsókna.

Fanga er heimilt að taka á móti gestum í allt að 2 klst. í senn. Forstöðumaður fangelsis getur ákveðið að heimsóknartími sé lengri, bæði almennt og í einstökum tilfellum.

8. gr.

Eftirlit með heimsóknum.

Í upphafi afplánunar skal fangi skýra starfsmönnum fangelsis frá því hverjir séu nánustu vandamenn hans. Fangi skal tilkynna starfsmönnum fangelsisins um heimsókn slíkra aðila.

Óski fangi eftir heimsókn annarra en tilkynnt var um í upphafi skal hann að jafnaði tilkynna það með tveggja vikna fyrirvara. Heimilt er að krefja þann er heimsækir fanga um persónuskilríki.

9. gr.

Eftirlit með heimsóknargestum.

Forstöðumaður fangelsis setur reglur um hvaða hluti heimsóknargestur má hafa með sér. Heimilt er að setja það skilyrði að það sem farið er með til fanga sé skoðað. Hlutir sem heimsóknargestum er bannað að koma með til fanga, skulu varðveittir tryggilega á meðan á heimsókn stendur.

10. gr.

Heimsóknir barna.

Heimsóknir barna yngri en 16 ára til fanga skulu fara fram í fylgd forráðamanns eða annars aðstandanda. Heimilt er að leyfa barni sem náð hefur 16 ára aldri að heimsækja fanga án fylgdar, liggi fyrir skriflegt samþykki forráðamanns eða annars aðstandanda, enda verði það ekki talið andstætt hagsmunum barnsins.

11. gr.

Reglubundnar heimsóknir.

Fangelsismálastofnun getur leyft reglubundnar heimsóknir tilgreindra einstaklinga til eins eða fleiri fanga án þess að það skerði rétt fanga til almennra heimsókna. Slíkar heimsóknir mega fara fram utan reglubundinna heimsóknartíma.

12. gr.

Heimsóknir undir eftirliti.

Þegar heimsókn fer fram undir eftirliti fangavarðar má setja það skilyrði að samtal fari fram á tungumáli er fangavörðurinn skilur, enda teljist það nauðsynlegt til að viðhalda góðri reglu og öryggi í fangelsi eða til að fyrirbyggja refsiverðan verknað. Ef aðstæður krefja skal fá túlk til aðstoðar.

13. gr.

Nánari reglur um fyrirkomulag heimsókna.

Forstöðumaður fangelsis getur að öðru leyti sett nánari reglur um fyrirkomulag heimsókna. Upplýsa skal þann sem kemur í heimsókn til fanga um þær reglur er gilda um heimsóknir.

14. gr.

Haldlagning bréfs.

Nú er hald lagt á bréf og skal þá sendanda tilkynnt um að það hafi verið haldlagt, nema ríkar ástæður séu til annars.

15. gr.

Opinberar stofnanir.

Með opinberum stofnunum í 4. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 37. gr. laga um fullnustu refsinga er, auk íslenskra opinberra stofnana, átt við:

1. Mannréttindadómstól Evrópu.

2. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna.

3. Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum.

4. Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

5. Stjórnarerindreka eða ræðismann, ef fangi er ríkisborgari viðkomandi ríkis.

16. gr.

Aðgangur að fjölmiðlum.

Skrifleg umsókn um viðtal við fanga í fjölmiðli skal send fangelsismálastofnun. Þar skal koma fram við hvern óskað er viðtals, efni viðtals í meginatriðum og hvort óskað er eftir myndatöku eða hljóðritun. Þegar metið er hvort viðtal verður veitt skal fangelsismálastofnun einkum líta til alvarleika brots, hversu langt er liðið á afplánun fangans og hegðunar hans í refsivist. Viðtal verður ekki veitt ef talið er að það sé andstætt almannahagsmunum eða hagsmunum brotaþola.

Nú er um gæsluvarðhaldsfanga að ræða og ákveður þá sá sem rannsókn stýrir í viðkomandi máli að höfðu samráði við fangelsismálastofnun hvort viðtalið skuli heimilað.

Nú er veitt heimild til viðtals og skal þá í leyfinu kveðið á um hvernig því skuli háttað, þ.á m. um eftirlit með viðtalinu og að fangelsismálastofnun sé heimilað að skoða viðtal eða myndatöku í endanlegri mynd áður en það er birt eða sent út til að staðreyna hvort skilyrði fyrir viðtalinu eða myndatöku hafi verið uppfyllt í því skyni að tryggja að viðtalið teljist hvorki andstætt almannahagsmunum eða hagsmunum brotaþola.

Bein útsending viðtals er óheimil. Ekki er heimilt að nafngreina eða fjalla um persónuleg málefni annarra fanga í viðtali en þess sem viðtalið er við. Ekki er heimilt að mynda aðra fanga en viðtalið er við nema með þeirra samþykki. Forstöðumaður fangelsis ákveður hvar myndataka fer fram.

17. gr.

Reglubundin dagsleyfi.

Greiða skal fanga þóknun eða dagpeninga, eins og venjulega, fyrir þann tíma sem hann er utan fangelsis vegna leyfis, nema þegar hann hefur rofið skilyrði leyfisins eða að öðru leyti þær reglur sem um það giltu eða misnotað það að öðru leyti.

18. gr.

Synjun um leyfi eða afturköllun þess.

Nú er synjað um leyfi til dvalar utan fangelsis vegna þess að hætta er á að fangi muni misnota það eða það er afturkallað, og skal þá koma fram hvenær ákvörðunin geti fyrst komið til endurskoðunar.

19. gr.

Skilyrði reynslulausnar.

Fangelsismálastofnun er heimilt að ákveða að fangi skuli látinn laus til reynslu þegar hann hefur afplánað tvo þriðju hluta refsitímans, eða þegar helmingur refsitímans er liðinn, sbr. 2. mgr. 63. gr. laga um fullnustu refsinga.

Að jafnaði verður fanga ekki veitt reynslulausn þegar liðinn er helmingur refsitímans, ef hann afplánar refsingu fyrir alvarlegt eða að öðru leyti gróft afbrot, eða tilraun til slíks brots, s.s. manndráp, ofbeldis- eða kynferðisbrot, frelsissviptingarbrot, meiri háttar fíkniefnabrot, brennu eða önnur almannahættubrot, rán eða annað afbrot sem þykir sérlega alvarlegt eða gróft.

20. gr.

Gæsluvarðhaldsfangar.

Rannsóknaraðili skal, ef því verður við komið, tilkynna starfsmönnum viðkomandi fangelsis í tæka tíð um væntanlegan gæsluvarðhaldsfanga.

Þegar gæsluvarðhaldsfangi kemur í gæsluvarðhald skal afhenda starfsmanni fangelsis staðfest endurrit af gæsluvarðhaldsúrskurði eða yfirlýsingu dómara um úrskurðinn. Jafnframt skal afhenda vistunarseðil, sem sá sem rannsókn stýrir gefur út, þar sem fram kemur nafn, kennitala og heimilisfang fanga, hvar og hvenær úrskurður var kveðinn upp og tímalengd hans, hver stýrir rannsókn og hver sé verjandi fanga og símanúmer verjandans. Á vistunarseðli skal ennfremur tilgreina fyrirkomulag gæsluvarðhalds.

21. gr.

Upphaf gæsluvarðhalds.

Þegar starfsmaður fangelsis hefur staðreynt að gæsluvarðhaldsfangi skuli settur í gæsluvarðhald, skal fanginn afhenda persónulega muni og líkamsleit gerð. Áður en gæsluvarðhaldsfangi er færður til klefa síns er heimilt að ákveða að hann fari í bað eða sturtu.

22. gr.

Fæði gæsluvarðhaldsfanga.

Gæsluvarðhaldsfanga skal séð fyrir fæði á venjubundnum matmálstímum. Forstöðumaður fangelsis getur takmarkað eða bannað að fangi fái sent fæði ef hætta þykir á að það raski góðri reglu eða öryggi í fangelsinu. Fangelsi greiðir ekki kostnað við fæði sem gæsluvarðhaldsfangi útvegar sér eða fær sérstaklega sent, nema það sé gert að ráði fangelsislæknis.

23. gr.

Skammtímaleyfi gæsluvarðhaldsfanga.

Nú er gæsluvarðhaldsfanga veitt skammtímaleyfi skv. IV. kafla laga um fullnustu refsinga og skal þá liggja fyrir skriflegt samþykki af hálfu þess sem rannsókn stýrir.

Þegar gæsluvarðhaldsfangi fær skammtímaleyfi skal hann ávallt vera í fylgd lögreglumanna eða fangavarða.

24. gr.

Vinnsla persónuupplýsinga.

Forstjóri fangelsismálastofnunar og forstöðumenn fangelsa bera ábyrgð á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga og að meðferð þeirra samrýmist reglum og stöðlum sem Persónuvernd setur um hvernig tryggja skuli öryggi upplýsinga. Jafnframt bera þeir ábyrgð á að varsla gagna sé með traustum hætti. Til að fullnægja þessu skal reglulega framkvæma öryggismat og gerðar kerfisbundnar öryggisráðstafanir.

Forstjóri fangelsismálastofnunar og forstöðumenn fangelsa skulu viðhafa og skipuleggja viðvarandi innra eftirlit með vinnslu persónuupplýsinga. Eftirlitið skal miða að því að tryggja áreiðanleika upplýsinga og koma í veg fyrir aðgang, breytingu eða miðlun upplýsinga án heimildar.

Vinnsla persónuupplýsinga skal takmörkuð við upplýsingar sem eru nauðsynlegar vegna fullnustustarfa og er óheimilt að nýta þær í öðrum tilgangi. Eftir því sem frekast er unnt skal vinnsla persónuupplýsinga bundin við sannreyndar upplýsingar. Upplýsingum skal eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.

25. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 80. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005, öðlast þegar gildi.

Jafnframt falla úr gildi eftirtaldar reglugerðir:

1. Reglugerð um fullnustu refsidóma nr. 29 28. janúar 1993, með síðari breytingu.

2. Reglugerð um gæsluvarðhaldsvist nr. 179 4. maí 1992, með síðari breytingum.

3. Reglugerð um leyfi afplánunarfanga til dvalar utan fangelsis nr. 719 29. desember 1995, með síðari breytingum.

4. Reglugerð um vinnu, nám og dagpeninga til afplánunarfanga nr. 409 6. júlí 1998, með síðari breytingu.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 8. nóvember 2005.

Björn Bjarnason.

Ragna Árnadóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. nóvember 2005