Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 950/2007

Nr. 950/2007 3. október 2007
REGLUGERÐ
um ættleiðingarstyrki.

1. gr.

Framkvæmdaraðili.

Vinnumálastofnun sér um framkvæmd laga um ættleiðingarstyrki og reglugerðar þessarar.

2. gr.

Réttur til ættleiðingarstyrks.

Eingöngu þeir sem skráðir eru með lögheimili hér á landi samkvæmt þjóðskrá eiga rétt á greiðslu ættleiðingarstyrks.

Réttur til ættleiðingarstyrks er bundinn því skilyrði að um frumættleiðingu erlendra barna sé að ræða. Með orðinu frumættleiðing er átt við ættleiðingu á barni sem ekki er barn eða kjörbarn maka umsækjanda, sambúðarmaka eða maka í staðfestri samvist.

3. gr.

Umsókn um ættleiðingarstyrki.

Umsókn um ættleiðingarstyrki skal skilað til Vinnumálastofnunar á þar til gerðu umsókn­areyðublaði er stofnunin hefur útbúið. Eyðublöðin skulu liggja frammi hjá stofnuninni og vera aðgengileg á heimasíðu hennar.

Vinnumálastofnun skal veita allar upplýsingar um skilyrði ættleiðingarstyrkja og útreikn­ing þeirra og önnur atriði sem máli kunna að skipta og veita umsækjendum nauðsynlegar leiðbeiningar og aðstoð við gerð og frágang umsókna.

Vinnumálastofnun skal sjá til þess að nauðsynlegar upplýsingar um ættleiðingarstyrki séu aðgengilegar að minnsta kosti með rafrænum hætti á heimasíðu stofnunarinnar.

4. gr.

Fylgigögn með umsókn.

Umsókn um ættleiðingarstyrki skulu fylgja eftirfarandi gögn:

  1. Staðfesting þjóðskrár á lögheimili umsækjenda samkvæmt íbúaskrá.
  2. Forsamþykki ættleiðingar útgefið af sýslumanni samkvæmt lögum um ættleiðingar.
  3. Staðfestingarbréf erlends stjórnvalds um ættleiðinguna stimplað/áritað af sýslu­manni.

5. gr.

Fjárhæð styrks.

Grunnfjárhæð ættleiðingarstyrks skv. 1. mgr. 7. gr. laga um ættleiðingarstyrki nemur 480.000 kr.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 9. gr. laga um ættleiðingarstyrki, nr. 152/2006, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 3. október 2007.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Sesselja Árnadóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. október 2007