1. gr. Við 2. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Þrátt fyrir þetta skal réttarstaða allra umsækjenda taka mið af skráningu í þjóðskrá þann dag sem auglýstur umsóknarfrestur rennur út. 2. gr. Talan „II“ í b. lið 6. gr. falli brott. 3. gr. Við 3. mgr. 6. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Jafnframt er nefndinni heimilt að veita umsækjanda án fjöldskyldutengsla við skráð lögheimili undanþágu, sbr. a. lið 2. mgr., ef hann leggur fram opinbert vottorð um eignarhald sitt á lögheimilinu eða þinglýstan leigusamning til staðfestingar búsetu sinni. 4. gr. Nýtt fylgiskjal, sem birt er með reglugerð þessari, kemur í stað eldra fylgiskjals, sbr. reglugerð nr. 760/2004 og reglugerð nr. 829/2006 um breytingu á reglugerð um námsstyrki nr. 692/2003. 5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er skv. 8. gr. laga um námsstyrki, nr. 79/2003, kemur í stað reglugerðar nr. 903/2007 og öðlast þegar gildi. Menntamálaráðuneytinu, 8. október 2007. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þórhallur Vilhjálmsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |