1. gr. Við B. lið 3. tölul. 1. gr. bætist nýr stafliður: Sérhæfðar afgreiðslubifreiðar sem eru sérútbúnar til að afgreiða eldsneyti á flugvélar og eru eingöngu notaðar á lokuðu svæði flugvallar. 2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 4. gr. laga nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 1. október 2009. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Helena E. Snorradóttir. |