Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 764/2008

Nr. 764/2008 16. júlí 2008
REGLUGERÐ
um sameiningu heilbrigðisstofnana.

1. gr.

Með reglugerð þessari eru eftirtaldar heilbrigðisstofnanir sameinaðar og tekur sameiningin gildi 1. janúar 2009:

a.Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vesturlands sameinast eftirtaldar stofnanir:

St. Franciskusspítali Stykkishólmi.
Heilsugæslustöðin Búðardal.
Heilsugæslustöðin Borgarnesi.
Heilsugæslustöðin Grundarfirði.
Heilsugæslustöðin Ólafsvík.

b.Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir:

Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ.
Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík.

c.Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og Sauðárkróki sameinast eftirtaldar stofnanir:

Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki.

d.Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Dalvíkur- og Fjallabyggð sameinast eftirtaldar stofnanir:

Heilbrigðisstofnunin Siglufirði.
Heilsugæslustöðin Dalvík.
Heilsugæslustöðin Ólafsfirði.


2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009.

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. júlí 2008.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Vilborg Þ. Hauksdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. júlí 2008